jæja… Maður hefur nú lært andskoti mikið hér á huga.is sem kemur manni vel að vita í framtíðinni. En um daginn var kunningji minn að tala um vél sem hann var að fá og byrjaði að lýsa öllum pakkanum um hvað væri í blessaðri vélinni , hann talaði um þrykkta stimpla og milli-hedd, intercooler og margt fleira áhugavert ( tekur of langan tíma að lista það hér ) en svo kom svoldið sem ég varð kjaftstopp á : HEITIR ÁSAR ! ég varð eins og auli , vissi ekkert um hvað blessaður maðurinn var að tala um...