Leikurinn var á tilboði í Elko á 4995 um daginn og ég rétt missti af því. Ef einhver ykkar hér er búinn með leikinn og tilbúinn að losa sig við hann er ég spenntur fyrir því að nálgast leikinn. Ég er ekki að nenna að kaupa venjulega leikinn og þurfa að spila 25 borð til að vera jafnfætis öðrum sem eru að spila hann núna. Endilega hafið samband.
Ég var búinn að vera í vandræðum lengi með mína PSP en fann loks lausn til að spila mín öryggisafrit af leikjunum því það eru tvær tölvur á heimilinu og oft slagsmál um hver má vera með hvaða leik hverju sinni. En amk ég er með Pandoru batterý og kort og alveg möguleiki að aðstoða fleiri við sín vandamál ef vilji er fyrir því. Þetta tók mig smá tíma en engin þörf er á Lumines eða GTA leik til að “laga” tölvurnar til að spila okkar dýrmætu öryggisafrit. Endilega hafið samband.
Ég er að leita að lausn fyrir lítið herbergi þar sem æskilegast væri að hafa bæði tölvu og sjónvarp (t.d. fyrir PS2). Það væri auðvitað draumur að geta fundið eitthvað sem gæti dekkað millibilið. Sbr. LCD sjónvarp með VGA tengi eða DVI eða LCD skjár með Loftnetstengi og eða (SCART/RBG tengi) Slík tengi mættu reyndar vera í tölvunni en auðvitað væri kostur að geta nýtt PS2 í skjáinn án þess að þurfa að hafa kveikt á tölvunni líka. Einhverjar hugmyndir, eða tilbúnar lausnir?
Fimm myndir bárust í verkefni tíundu vikunnar, “Gamalt”. Verkefni vikunnar er “Farartæki”. Frestur til að senda inn mynd er fram á fimmtudaginn 6. október kl.18:00. Munið að myndirnar birtast ekki fyrr en eftir að fresturinn rennur út. Munið bara að láta myndina heita “Farartæki - nafn_myndarinnar” og hafið með í lýsingnni á hvernig vél hún er tekin og hvort er búið að vinna hana eitthvað. Það má senda inn eins margar myndir og maður vill. Það eru frekari upplýsingar á forsíðu áhugamálsins.
Ég er með Dell Inspiron 510m og Sony Ericsson síma og er að reyna að nota símann sem módem til að koma tölvunni á netið án teljandi vandræða. Er einhver hérna sem veit hvernig þetta er gert. Ég hef þegar getað notað símann sem mús í tölvunni, stjórnað media playernum og Powerpoint slideshowi. En ekki tengt símann á netið. (any ideas)
Sjálfsmynd sem átti að fara á dpchallenge.com en ég var of seinn að senda hana inn. Því ákvað ég að leyfa ykkur að sjá hana. Myndin er tekin á CANON EOS 10D
Local flying sunset, þegar maður situr við flugbrautirnar vakt eftir vakt eftir vakt, fer maður að verða skrítinn. Ég tók þessa mynd til að deyja ekki úr leiðindum.
Mér datt í hug, svona í tilefni þess að það er búið að vera svo gott sumarveður að senda inn eina sumarmynd af syni mínum. Mér skilst að þið ættuð flest öll að þekkja hann.
Við í “Ernir” fórum á rúntinn í gær og fórum útí Garð að garðskagavita, og fórum þaðan í gegnum Sandgerði útá Stafnes, svo uppí flugstöð og enduðum í félagsheimilinu. Þessi mynd er frá stoppinu á garðskaga
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..