Mér finnst þessi tíska alveg ógeðslega skrýtin! Hún ryðst inn í allar búðir og allir verða alveg brjálæðislega glaðir afþví það er komin ný tíska! En… Er samt ekki fullmikið að hún breytist svona 1-2 í mánuði! Mér finnst það allavega! Eins og þetta með neonlitina! Í 2 eða 3 vikur var algjört “möst” að eiga allavega eitthvað alveg súperskært, sama hvort það var bolur, belti eða bara hvað sem er! En þessir blómasandalar fara nú örugglega að detta úr tísku! Miðað við hvað allt annað hefur verið...