DAYSLEEPER=SNILLD?!? Ég fór á útgáfutónleika Daysleeper í gær og ég verð bara að segja að sjaldan hef ég skemmt mér jafn vel á tónleikum! Þeir voru haldnir í Tjarnarbíói og aðeins 200 sæti í boði fyrir þá sem vildu bera þessa menn augum og hlýða á nýjasta afrek þeirra, EveAlice. Er við mættum beið okkar hvítvín og rauðvín í boðinu… 18 ára aldurstakmark… og var það svo sannarlega vel metið. Tónleikarnir byrjuðu um tíu-leytið og tóku strákarnir öll lögin á plötunni í réttri röð (fyrir utan...