Ég lagði leið mína um daginn út á vídeóleiguna heimamynd á langholtsveginum, í leit að einhverri gamalli, ömurlegri hryllingsmynd til að hlæja að. Myndin sem varð fyrir valinu var Critters 4. Leikstjóri myndarinnar er Rupert Harvey, en hann hefur framleitt aðrar myndir á borð við Android(1982), The Blob(1988) og nú síðast Bones(2000). Tagline: In space, they love to hear you scream! Myndin byrjar þannig að hausaveiðarinn Charlie er í þann mund að eyðileggja tvö síðustu “critters” eggin,...