Ég fór út á leigu um daginn og leigði mér Ali á ónefndri leigu í Hafnarfirði þar sem maður getur leigt allar DVD á 300. Ég kom heim og hafði ekki séð myndina áður og hlakkaði mikið til að sjá hana. Skelli disknum í tækið og ýti á “play” hnappinn á fjarstýringunni, svo fer myndin í gang og ég ætla að setja á íslenskan texta, en viti menn það er enginn texti yfirhöfuð á myndinni, ekki einu sinni enskur. Ég ákvað samt að reyna að horfa á myndina en þá var hljóðrásin ekkert skárri og maður...