Atburðurinn í Bandaríkjunum er alveg hreint ótrúlegur. Þúsundir manna létu lífið og þvílík ringulreið hefur skapast þar. Fátt annað hefur verið í fréttum og það sem mér finnst svolítið áberandi í fréttaflutningunum er það að margir hafa verið að kalla þetta huglausan verknað, m.a. forseti Bandaríkjanna og aðrir háttsettir menn. Mér dettur í hug ýmis orð sem lýsa þessum verknaði betur en huglaus s.s. grimmilegur, hrottalegur, hræðilegur, hryllilegur, samviskulaus. Það hefur þurft mikla...