Peugeot Sport hefur einsett sér að taka í notkun nýja árgerð, þ.e. Peugeot 206 World Rally Car evolution 3, á Kýpur um næstu helgi. Sumum finnst þetta glæfralegt, þar sem þeir eru enn fátækir af varahlutum í bílinn, og reglur segja að eftir að nýr bíll hefur verið tekinn í notkun, má ekki nota aftur gamla bíla. Þeir segjast vera í einhverjum vandræðum með gírkassann, en samt sé kominn tími á að taka græjuna í notkun. Nýji bíllinn er engin bylting, aðeins minniháttar breytingar, en...