Hef ég nokkurn tíman sært þig svo að ekki renna tár, við kvarma mína… Þú ert mitt lífsins blóm, nærður við barminn minn. Að geta ekki bjargað þér, úr örlögum þess heims tætir úr mér hjartað, tætir mitt geð. Fokreið ég stari, svo illilega reið. “Barnið mitt, hvar ert þú í nótt?” Þú ert sterkur, það veit mín vel, en móðir finnst hún bera þungað eið, að hjálpa þér þegar þú villist af leið, og berja frá þér púkana sem leytast að þér… En víst ertu einn, það erum við öll örlög þín ekki í hendi...