Valið stendur um Vieira og Sheva Stjórnarformaður Real Madrid, Florentino Perez, segir að Frakkinn snjalli Patrick Vieira og Úkraínumaðurinn Andrei Shevchenko séu efstir á óskalista Real Madrid. Hann hefur einnig greint frá því að Jorge Valdano sé að fylgjast með þeim tveimur og að liðið muni kaupa einn nýjan mann fyrir næsta tímabil. Perez segir að taktíkin sé að fá heimsins bestu menn til liðsins og hann segir að Alessandro Nesta sé alls ekki inni í myndinni og það eru bara orðrómar...