Fyrir u.þ.b. tíu árum varð sinfóníska þungarokkið til sem sérstök stefna en einn helsti framvörður hennar frá fyrstu tíð hefur verið finnska sveitin Nightwish. Hún er leidd af sópransöngkonu og hefur borið höfuð og herðar yfir þær sveitir sem feta svipaða slóð. Í síðasta sunnudagsblaði Morgunblaðsins var viðtal við fyrrverandi söngkonu sveitarinnar, Törju Turunen, en hún hefur nú hrundið sólóferli af stað. Ný söngkona, Anette Olzon, gekk til liðs við sveitina í vor og platan Dark Passion...