Það er bara heimska að reyna að halda því fram sem þú ert að reyna núna. Hefur þú komið í Borgarfjörð?, Eyjafjörð, Suðurlandsundirlendið eða aðra staði á láglendi sem eru mun grónari en þessi sandauðn?
Árlega koma til Íslands eitthvað í kringum 400.000 ferðamenn. Helmingurinn af þeim er bara að millilenda hérna og stoppar hér í nokkra klukkutíma. Segjum að 20% þessa 200.000 sem eftir eru fari til Austurlands. Það eru 40.000 manns. Segjum að helmingurinn af þeim fari í þennan garð. Það eru 20.000 manns. Þú rekur ekki svona garð á 20.000 manns.
Mér finnst bara skrýtið að megnið af fólkinu sem er á móti þessu er alls ekki af þessu svæði, þeas austurlandi. Og sumir hafa ekki einusinni komið á þetta svæði. Ég er svo sammála þér með þetta. Þetta eru kannski einhverjir sem hafa lesið eina grein í mogganum eftir einhvern vinstri grænan og hefur ekki kynnt sér báðar hliðar málsins.
Þú getur kannski bent mér á það af hverju rökfærslan í þessari grein er handónýt? Mér finnst ég ekki hafi fengið neitt almennilegt svar sem segir að greinin mín sé svona léleg.
og svo á enginn eftir að græða eitt á henn i því peningurinn fer allur úr landu fráþessu álveri. Þetta er ekki rétt. Allir mennirnir sem vinna þarna fá launin sín frá álverinu, svo græðir landsvirkjun á orkunni sem þeir selja þeim. Ég veit reyndar ekkert um það en ég held að íslensk skipafyrirtæki sigli líka með álið.
Vinna í álveri er ekki slæm vinna. Ekkert af okkar skatti rennur í virkjunina. Alcoa mengar ekkert meira en önnur sambærileg fyrirtæki. Ég sé ekkert samhengi með álitinu þínu og svo viðbótinni þinni. Þú komst aldrei með neina ástæðu fyrir því af hverju stóriðja væri heimskuleg.
Mér finnst leitt að hugsa til þess að ef mér dytti það nú einhvern tíma í hug að fara og heimsækja Kárahnjúka þá er það eina sem ég fæ að sjá, risastór stífla sem ber merki um neylsufár okkar Íslendinga og landa allt í kring. Ef stíflan hefði ekki verið gerður vegur þangað og þú hefðir sennilega aldrei farið upp að Kárahnjúkum. Hefur þú komið að Blöndulóni? Það fellur vel inn í landslagið og er ekkert ljótt.
En það er líka sú umræða að kárahnjúkavirkjun eigi eftir að bresta. Þetta eru jafn hlægileg rök eins og ef hætt yrði að framleiða bíla af því að ökumennirnir gætu lent í slysi.
Flugvélar er eitt af dæmunum sem þú gefur upp. Bíddu, hvar hef ég verið? Á ekki að byrja að framleiða flugvélar úr trefjaplasti? En það er ekki komið í gagnið ennþá og ef ekkert ál hefði verið til væru til flugvélar núna?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..