Ég var að fá mér chihuahua hvolp karlkyns og er ég búin að eiga hann í mánuð. Nú veit ég mjög lítið um þettað hundakyn en er búin að reyna að lesa mig til því ég er alveg að gefast upp og mig vantar hjálp ! Hann gerir þarfir sínar út um allt og ætlar ekki að fást til að læra að láta vita eða gera þær á blað sem ég hef alltaf á sama stað. Svo er hann alltaf bítandi ! Þegar maður er að labba ræðst hann á fæturna á manni og þegar verið er að klappa honum reynir hann að bíta mann. Hann er ekki...