Íslendingar unnu í kvöld Júgóslava 34- 29 á heimsbikarmótinu í handknattleik í Svíþjóð. Íslenska liðið hóf leikinn af miklum krafti og náði snemma öruggri forystu. Í fyrri hálfleik var munurinn mestur 6 mörk, en í hálfleik munaði 4 mörkum, staðan var þá 17-13 Íslandi í vil. Íslenska liðið hélt síðan öruggri forystu út leikinn og sigraði með fimm marka mun. Patrekur Jóhannesson skoraði 9 mörk, Einar Örn Jónsson 7, Gústaf Bjarnason 7/3, Aron Kristjánsson 3, Guðjón Valur Sigurðsson 3, Gunnar...