Ég hef ætlað að rita stutta grein um bílinn minn í nokkurn tíma og ákvað að láta nú loks slag standa. Bíllinn minn er Renault Clio Sport mk2, eða Clio 172 eins og hann er oft kallaður til að aðgreina þá V6 bílnum. Þetta er önnur útgáfa þessa bíls, þ.e. í boddyinu sem kom seinni helming ársins 2001. Renault hefur í gegnum tíðina átt allnokkra skemmtilega smábíla og má þar nefna t.d. Renault 5 Turbo, Clio 16v, Clio Wiliams, Megane Williams, Clio Sport 172 og V6(spurning að hafa V6 með í...