Ok, í kjölfar Flash umræðunnar langaði mig að varpa fram annarri spurningu sem varðar Shockwave 3D tæknina sem Macromedia er búið að þróa ásamt Intel og í samvinnu við helstu framleiðendur þrívíddarforritanna á markaðnum. Fyrst allir eru svona and#?$&% krítískir á Flashið, hvað haldið þið þá um “streymandi gagnvirkar þrívíðar vefsíður”? Það má taka fram að til að skoða .w3d skrár verður að hafa Shockmachine 8.5 og mig minnir að hún sé um 1.5MB í hleðslu - töluvert stærra “plug-in” en Flash...