Halló Ég er hljóðneminn og mig langar til að senda inn ljóð. Ég er mikill áhugamaður um ljóðagerð. Þetta ljóð er kannski ekki upp á marga fiska en ég vil biðja ykkur að segja mér álit ykkar á þessu ljóði. Hvarf Myrkur, myrkur!! Það umlykur mig Ég er fastur í feni það fangar mig. Ástin er slokknuð hún elskar ei mig. Myrkrið mjakar sér inn magnast síðan. Ég er blindur og banginn, bjargarlaus maður. Ástin hvar ertu ? ég elska þig. Ég hverf í myrkrið Ég er horfinn. Ég er ekkert.