Angelina jolie er núna að leika í framhaldsmynd um hörkutólið Löru Croft og nefnist hún Tomb Raider 2: Lara Croft and the Cradle of life. Hún gefur sér samt ætið tíma til að sinna hugðarefnum sínum og fyrir utan soninn Maddox, sem fær næga athygli frá henni,sinnir hún störfum sínum sem sérlegur sendiherra Sameinuðu þjóðanna í þágu mannúðarmála. Angelina hefur tekið sérstöku ástfóstri við Kambódíu eftir að hún heimsótti landið við tökur á fyrri Tomb Raider-myndinni(Maddox er frá Kambódíu)og...