Ég fór í fyrsta skiptið á hokkíleik í gær með litla frænda mínum, en hann er nýlega búinn að fá einhverja hokkíbakteríu og þekkir einhverjar stráka í Birninum. En hvað með það. Mér leist bara vel á þetta í byrjun og skemmti mér ágætlega og svo byrjuðu þessi óskaplegu hróp og köll frá einhverjum náunga þarna í stúkunni. Þvílíkar voru svívirðingarnar og dónaskapurinn að ég var að hugsa um að fara með frænda minn í burtu. Svo síðar eftir að einum gæanum hafði verið hent útaf þá kom sá upp í...