Græjuperrinn verður haldinn í kjallara Hins Hússins, laugardaginn 17. mars frá 14-17.00. Góður vettvangur til að sýna eða selja hljóðfæra- og effektagræjurnar sínar eða skoða og skiptast á græjum við aðra. Hljóðfærabúðirnar RÍN og Hljóðfærahúsið verða með bása á svæðinu þar sem þær kynna spennandi vörur úr verslunum sínum. Magnarar verða á staðnum svo hægt verður að prufa hljóðfærin. Fyrir þá sem hafa áhuga á að taka þátt þá er skráning í síma 4115500 eða á hitthusid@hitthusid.is. Öllum er...