Lestin. Hann var á leið heim, eftir að hafa brugðið sér frá, til ýmissa erinda sem hann átti eftir að sinna í nýjum heimi sannleikans. Það var svalt, en sterk vorsólin sem fór síhækkandi, skein, óhindruð og björt „Sie ist der hellste Stern von allen“ merkilegt að að Þýskan geymi þetta orð „hell“ yfir bjart hugsaði hann með sér þegar hann gekk að dyrum hússins. Hann gekk inn og í stóru stigahúsinu var eins og að gömul kolalest hefði nýfarið þar um og skilið eftir sig reykfylltan hitamökk úr...