Ég ætla að segja aðeins frá fuglinum mínum, sem er kvenkyns gári. Hún er gul og því fannst mér það sjálfsagt að hún yrði skírð Tweety. Ég fékk hann í nóvember 2003, og varð hún 3 ára 23. september. Hún er svaka gæf og kom hún á putta og öxl á fyrsta degi. Henni fynnst rosalega gaman að naga blöð og svona. Hún hefur nokkrum sinnum nagað nammi stangir í tvennt. Ég hef einusinni látið vængstífa hana, til að þjálfa hana, en það var í maí, og það tók um það bil fjóra mánuði fyrir fjaðrirnar að...