Komið þið sæl, Ég streitist á móti að kaupa digital myndavél enda á ég ágætis 35 mm vél. Ég lét Hans Petersen framkalla filmu og setja á CD. Gæðin voru rýr, upplausnin aðeins 1500x1024 sem gerir 35 mm filmu engann veginn góð skil mér vitanlega, upplausnin mætti vera 2000 x 3000. Verðið var næstum 2.000 kr en ég sé að erlendis eru menn að fá þetta gert fyrir 5-6$ eða 500 kr. Er einhver aðili á Íslandi sem gerir þetta ódýrt og vel ? Kveðja, Kári