það vill svo skemmtilega til að ég er í geggjuðu nöldurstuði núna, vill svo skemmtilega til að ég ákvað að endurnýja bílinn minn fyrir um 6 mán síðan, átti gamlan traustan kagga sem að löggan var svo yndisleg að klippa númerin af vegna minniháttar örðuleika, og nokkura grindarbrota. Ég var búinn að eyða talsverðum pening í þann gamla til að halda honum í standi, svo ég fékk þá geggjuðu hugmynd að ef ég myndi nú kaupa mér nýjan lítin keyrðan bíl myndi viðhaldskostnaðurinn vera það sama og...