Þau eiga sér langa sögu skötuhjúin sú … en hverjum myndi ekki langa að sjá þau ná saman að nýju? Ganga í hnapphelduna, stofna heimili og fjölskyldu … en það var einmitt það sem kom upp á milli þeirra í fyrri atrennunni. Nú hafa þau bæði vaxið að árum, og að minnsta kosti annað þeirra að viti líka! (Skal engum dyljast að þá á ég við Darren, því að mínu mati fer persóna Libbyar þverrandi með hverjum deginum sem hún prýðir skjáinn). Margir Grannaaðdáendur virðast, af skrifum hér að dæma, ekki...