Yfir heiðinni sólroðið ský, sigla skútur með fjöllum, hafið heillar á ný, með sjávarföllum. Brimaldan brotnar byrðingi við lognýra kemur á dimmum kvöldum. Ljósroðið ský, báturinn vaggar við öldum, gjálfur með gárum, brunar himin fley , með kletta ströndum. Ljósboginn bognar fyrir sjónarröndum gullslegið ský.