Ég er búin að vera að hlusta á tvær plötur með Atom Heart, sem kallar sig víst frekar Atom(TM) þessa dagana, og eins og alltaf veit maður varla hvað á að halda. En ég ætla að vaxa yfir ykkur lýríkal um þær! Fyrst er það Geez N´Gosh - My life with Jesus af Mille Plateaux Miðað við Uwe (hann heitir það svo ég rugli ykkur nú alveg) þá er þetta óvenjulega grúví plata, fullt af glitz, skrans og bíp sándum eins og venjulega, en óvenjulega samhangandi bíti og frekar fönkí grúvi miðað við margt...