Ég vil endilega fá álit ykkar á þessari sögu og ekki vera smeyk við að gagngrýna. ————————— Morðingi eða hetja. Það var að nálgast miðnætti þegar Grímur bankaði á dyrnar hjá mér. Það var langt síðan að við höfðum séð hvorn annan og það kom mér frekar á óvart að hann skildi birtast svo snögglega, án þess að láta mig vita. „Gakktu í bæinn Grímur“, sagði ég. Hann leit frekar illa út, þreytulegur og hann hafði greinilega fengið sér í glas. Hann var í ljósbrúnum frakka, þeim sama og hann hafði...