Einn besti miðherji allra tíma , leikmaður Toronto Raptors hann Hakeem Olajuwon gæti verið á þeirri leið að hætta í NBA deildinni vegna meiðsla í baki sem hefur verið að hrjá hann undanfarið. En þó að Olajuwon hefur ekki tilkynnt þetta opinberlega , þá var Glen Grunwald ekki bjartsýnn á framtíð hans hjá félaginu. “Ég á ekki von á því að hann spili á næsta tímabili”, sagði Glen Grunwald stjórnarformaður Raptors. En hinn 39 ára kappi á þó ennþá einhverja möguleika. Hann getur farið í...