Endilega segi þið mér hvað ykkur finnst. 1.kafli Bakaríis-Bræðurnir ,,Hvert erum við að fara?“ spurði ég og stóð stjörf. Yfir mér gnæfði gamalt, drungalegt, þriggja hæða hús sem hafði verið málað hvítt á sínum tíma en bar nú engan heildarlit. Ég renndi augunum yfir bugðótta bárujárnsveggina og þurfti að snúa höfðinu á alla kanta til að fá eitthvað samhengi í munstrið sem sprungurnar og ryðblettirnir mynduðu. Mosavaxinn steypukanturinn var grænn í stíl við fúna gluggakarmana. Fyrir framan...