Ég er búinn að fara nokkrum sinnum í vetur og hef skemmt mér ágætlega, ágætis snjór og ég var heppinn með veður. Fór svo að velta því fyrir mér þegar skíðasíminn segir dag eftir dag að það sé nægur snjór og þeir hafa ekki einu sinni fyrir því að troða hinn svonefnda brettagarð (sem er alltof stuttur). Í suðurgili síðasta laugardag var ágætis pallur neðst sem hægt var að leika sér á, en hann var líka sá eini. Nú virtist mér nægur snjór í brettagarðinum þegar ég renndi mér niður hann,...