Fimmtudaginn 31.okt. kl:20:00 í Hinu húsinu - verður sérstakt Hrekkjavöku Rokk/Metal kvöld þar sem tvær ferskustu rokk-hljómsveitirnar í dag traðka sviðið. Rokkmulningsvélin Isidor keyrir á ný-eighties rokk-straumum fyrri hluta sýningarinnar með fullum krafti. PhutureFX taka þá við með ferskum rokkmetal beinustu leið frá Bandaríkjunum. Þessi hljómsveit hefur hlotið lof gagnrýnenda neðanjarðarmarkaðarsins í músík á Íslandi - áheyrn er lofi ríkari! Þeir sem missa af þessu, hreinlega MISSA af...