Ég hef sjálf átt Red Eared Slider og var með allt handa henni sem þurfti, þar á meðal 360 l. búr, stóra tunnudælu og sólbaðsaðstöðu. Hún var orðin ofboðslega stór og erfitt að halda á henni, en ég tók hana alltaf úr búrinu og setti í bala þegar hún fékk að borða til að spara búraþvott. Mín baka var sko engin alæta, hún vildi kjúkling, kattamat (100% kattamatardollurnar í dýraríkinu) eða skjaldbökumatinn sinn sem fæst þar einnig. Þegar ég fór að reikna þetta saman var þetta dágóður slatti....