Hér að neðan mun ég fjalla um hvernig má bera saman fjölda einhverra tveggja mengja sem hafa óendanlega mörg stök (hér má alveg eins ímynda sér mengi sem inniheldur óendanlega marga hluti eða hvað sem manni dettur í hug, svo sem mengi allra mögulegra ferða í kringum jörðina). Ég mun notast við lítinn part af því sem ég skrifaði um rauntölur sem má líka finna hér á Huga. Fyrir lesanda er nauðsynlegt að átta sig á hvaða tölur eru: Náttúrulegar (heilar og jákvæðar: 1,2,3,4,…) Heilar (þær...