Pétur Marteinsson fékk að líta á rauða spjaldið í leik þeirra félaga í Íslendingaliðnu Stoke City er þeir léku gegn Notthingham Forrest í ensku fyrstu deildinni í dag, hann var sagður hafa sett hendina fyrir boltann af ásettu ráði þegar boltinn var á leiðinni í netið. Núna eftir leikinn hefur enska knattspyrnusambandið verið að skoða myndirnar af atvikinu og telja þetta óviljaverk. Pétur fær því að spila í næsta leik Stoke City.