Það verða stórtónleikar í Tónlistarþróunarmiðstöðinni (TÞM) 24. janúar þegar bandaríska þungarokksveitin Modern Life is War mun heiðra okkur með nærveru sinni. Hljómsveitin, sem hefur gefið út tvær breiðskífur, hefur fengið einróma lof fyrir plötur sínar og er sögð vera eitt besta tónleikaband í neðanjarðarheiminum um þessar mundir. Fyrsta breiðskífa þeirra, “Clarity”, kom sem sprengja inn í neðanjarðartónlistarheiminn fyrir fáum árum og gátu gagnrýnendur varla haldið vatni yfir henni. Svo...