Ég treysti tæknimönnum Simnets fullkomlega fyrir þessu. Finnst a.m.k. frekar ólíklegt að þeir séu bara að bora í nefið í staðinn fyrir að reyna að komast til botns í þessu. En annars, að vísu hef ég ekki orðið fyrir barðinu á þessari svartímasýki sem virðist hrjá margan CS spilarann, þannig að það kæmi mér ekkert á óvart ef fólk tæki ekki mark á mínu áliti. Einnig vil ég benda á það að Íslandssími heldur uppi Fortress þjónunum sem eru þrír talsins settir upp fyrir CS, og svo einhverjir fyrir...