Maðurinn á myndinni er Dwight Howard, atvinnumaður í NBA. Hann er 2.11 á hæð og 120 kíló. Hann spilar 82 leiki á leiktíð (svona um það bil 1 leikur á 3 daga fresti) og svo lyftir hann og æfir á milli leikja. Margir neita að trúa að íþróttamenn séu “að djúsa” en er hægt að leggja svona mikið álag á líkamann án þessa að vera á einhverjum hjálparefnum? Og ef það er ekki hægt, eru þá allir þessir góðu íþróttamenn heimsins komnir á stera?
Ég er að spá í fá mér mitt fyrsta tattú eftir að hafa fengið leyfi hjá gömlu eftir langt röfl. Ég var svona að spá í að fá mér “Made In Iceland” og strikamerki með. Veit einhver hvernig hægt er að tvinna þetta saman í eitt og láta þetta líta vel út. Þetta á ekkert að vera neitt stórt, bara svona nett og flott á milli herðarblaðanna. Getur einhver líka vísað mér á góða stofu?
Lýtur djöfull vel út, þetta nýja expansion. Vona samt að Azeroth breytist ekki of mikið, of mikið meistaraverk þessi landsvæði t.d. Barrens, TN, Ashenvale, Winterspring, Feralas, Tanaris o.s.frv.
Kóngurinn í giftingunni sinni, en hann er giftur Rouaida Christine Achkar. Hreint ekkert ómyndarleg skvísa. Fleiri myndir má sjá hér http://www.ronniecoleman.net/wedding.html
Usain Bolt, eða Lightning Bolt eins og hann er kallaður í sumum fjölmiðlum, í sínu týpíska vinningspósi. Hann sló 2 heimsmet á Heimsmeistaramótinu í frjálsum sem nú stendur yfir. Hann hljóp 100 metrana á 9.58 og 200 metrana á 19.19, geri aðrir betur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..