Söngvari Iron Maiden, Bruce Dickinsson, nýtti tækifærið þegar bandið var aðalnúmerið á Download-hátíðinni til að tilkynna smáatriði um nýju plötuna þeirra, sem lengi hefur verið beðið eftir. Iron Maiden eru um þessar mundir á “Give Me Ed… Til I’m Dead” tónleikaferðinni um Evrópu og Bandaríkin. Nýja platan, sem heitir Dance Of Death er þrettánda stúdíóplata sveitarinnar og á að koma út í September 2003. Byrjað var að vinna í plötunni síðla árs 2002 þegar Iron Maiden kom saman á ný eftir hlé...