Já djöfull er ég sammála ykkur um þetta helvíti. Ég ætlaði að fara um daginn og endurnýja mitt skírteini og nei nei mér bara sagt að borga einhverjar 3500kr. Ég varð alveg brjálaður og hellti mér yfir einhverja skrifstofudömu þarna niðrá stöð, sem er örugglega ágætis manneskja og ber enga ábyrgð á þessu, og sagðist ALDREI ætla að endurnýja mitt skírteini enda tel ég mig ekki þurfa þess. Þá sagði hún að löggan mundi sekta mig ef hún næði mér með útrunnið skírteini, eins og mér sé ekki sama....