Hinn fagra föstudag 26. október flugu nokkrir skátar úr Landnemum, Hamri og Kópum á vit ævintýranna til Ísafjarðar til að taka þátt í hinni margrómuðu orgíu. Nokkrar áhyggjur spruttu upp í hugum okkar þegar öllu flugi var frestað daginn áður og margir voru svartsýnir á að komast til Ísafjarðar. EN veðurguðirnir voru okkur hliðhollir og allir komust á áfangastað. Ég, Jonni, Mási, Blængur, Styrmir og Hildur komum öll með seinasta flugi og á flugvellinum tóku allir á móti okkar. Þá var brunað í...