Ég er búsett erlendis og þegar ég flutti út tók ég með mér fullt af gömlum bókum. Núna er ekki pláss fyrir allar þessar bækur lengur og ég er að leita að upplýsingum um hvernig ég geti komið þeim í sölu heima á íslandi, og hvort að það sé í raunhæft að halda að ég geti það? Þetta eru bækur síðan árin ‘30-’40 og yngra. Er einhver sem veit hvert ég get snúið mér með þetta málefni? Allar upplýsingar eru vel þegnar.