Mig langar að forvitnast um það hvort einhver viti …. hvort það megi gefa hundum verkjalyf? Einhver sagði mér að það mætti gefa þeim barna-Magnyl og þá bara brot úr töflu. Annar sagði mér að einhver góðhjartaður eigandi hefði drepið sinn hund með því að gefa honum of mikið af verkjalyfjum. En má yfir höfuð gefa hundum verkjalyf?? Eru til einhver sérstök verkjalyf fyrir hunda??? Takk fyrir góðan, upplýsandi og oft á tíðum jákvæðan hundavef. Freyja