Ágætu spilarar, velunnarar og aðrir lesendur: Nú þykir mér hart vegið að þeim góða félagsanda sem hefur fylgt þeim hópum er leggja stund á fjöldamorð í keppnisskyni í hin snilldarlega Unreal Tournament. Eins og flestum er kunnugt var í upphafi stofnuð sérstök spjallrás þar sem spilarar öttu kappi í umræðum um málefni er varða tölvuleikinn og rásin stóð því fyrir mikilli félagslegri uppbyggingu með það að markmiði að fólk sem hefur það að sameiginlegu áhugamáli að hanga yfir tölvuskjánum með...