8.kafli Hið ósagða Holly gekk hröðum skrefum eftir ganginum í átt að skrifstofu Serverusar Snapes. Í dag var seinasta eftirsetan. Hún gnísti tönnum. Hún skyldi aldrei aftur þurfa að sitja eftir hjá Snape. Hún rifjaði upp atburði seinustu daga, og þeir voru örfáir skemmtilegir. Þökk sé eftirsetunni hafði hún haft mjög lítinn tíma fyrir sjálfa sig. Hver einasti dagur hafði verið eins, vaknað, morgunmatur, tímar, matur, heimanám, eftirseta, kvöldmatur og meira heimanám. Svo brosti hún, á morgun...