Ég átti svo ferlega fallegan hest, foli sá kunni að tölta. Hinn tryggasti foli sem tölti lang best, er týndur og hættur að rölta. Á tíunda vetri varð tröllið mitt vart við tólið er dró ‘ann í dauðann. Að gef ‘onum kúlu var helvíti hart, en hófsperran gerði ‘ann rauðan. * Að kveðja þurfa klárinn atarna, var kvöl sem ég aldrei fæ gleymt. Folinn minn tryggi er feldur var þarna fákinn þann hefur mig dreymt. *Sbr. Blóð.