Ég fór um daginn á nýjustu mynd Hugh Grant, About a Boy, og bjóst við alls engu þegar ég settist í frekar skítugt bíósætið. Ræman byrjaði að rúlla og þar sást frekar hallærislegur strákur svona sirka 10 ára. Svo sá ég líka konuna sem lék Muriel í Muriel's wedding en hún er akkúrrat mamma stráksins, sem ég man ekki hvað heitir. Allavegana er Grant iðjuleisingi og lifir á lagi sem pabbi hans samdi á sínum tíma og var svona “one hit wonder” og hann lifir bara asskoti vel, á flotta íbúð og Audi...