Sælt veri fólkið. Ég fór á tónleika með hljómsveitunum Búdrýgindi og Ókind á Gauknum seinasta fimmtudag og ég verð bara að segja að þettu voru bestu tónleikar sem ég hef farið á í langan tíma, svo mikil var snilldin hjá hljómsveitunum. Búdrýgindi byrjuðu uppúr kl 11 og mig minnir að þeir hafi byrjað á nýju lagi, að minnsta kosti var það ekki á disknum þeirra. Lagið var ágætt byrjunarlag, en hefði sennilega ekki virkað í miðju programmi. Allavegna, svo tóku þeir nokkur lög af disknum, sem...