EXOS ÚTGÁFUTÓNLEIKAR EXOS MY HOME IS SONIC / Æ Recordings 2001 Teknóstjarnan skæra, Exos, fagnar sinni þriðju breiðskífu, My Home is Sonic sem kom út á Íslandi í síðustu viku og er væntanleg í plötubúðir um allan heim í janúar 2002. Tónlist Exosar (Arnviðar Snorrasonar) er teknó af hörðustu gerð. Honum hefur tekist á undraverðan hátt að opna annars læstar dyr teknóheimsins fyrir tónlistaráhugafólki úr öllum áttum, enda er hún með eindæmum dýnamísk og hugmyndarík. Exos hefur einnig verið...