Ég fór með vinnuhóp í gær (16. ágúst) í þennan svokallaða Litbolta eða “paintball”. Við mættum á staðinn svona rúmlega 6 og þar sem þetta var partur af vinnudjammi voru allir svona frekar drukknir og vitlausir og það tók langan tíma bara að finna sér föt, belti og grímur áður en sest var niður og gaurinn útskýrði fyrir okkur hvað mætti og hvað mætti ekki. Það reyndar tók svoldin tíma þar sem ég get talað óendanlega mikið í glasi :S En á endanum fengum við merkibyssur í hönd og fórum út á...